Minnisvarði

(Um Ingólf á Hellu)

Ingólf lít ég harla háan,
hugsa um smiðina.
Verst er að það vantar á hann
vinstri hliðina.

Published in: on nóvember 25, 2007 at 3:18 pm Rita ummæli

Vinnuandinn

Ég vinn til að vinna mér inn
það sem vinn ég mér inn, og ég finn
   að ef vinn ég og vinn,
   þá verður hann minn
vonandi, frídagurinn.

Published in: on nóvember 20, 2007 at 10:15 am Rita ummæli

Skólasöngur

Lag: Lukku-Láki

Eftir gresjunni gengur maður,
glugga hann stefnir á.
FSu er staður
sem hann hefur mætur á.
Businn er býsna glaður
að basla þar enn um sinn
því hann er heilvita maður
og hugsar um standardinn.
  Í FSu er grín og gaman
  gott er að vera þar
  einn eða allir saman.
  Enginn fær neitandi svar.
  FSu er æði,
  ég allur í skinni brenn
  að nema þar fög og fræði,
  já, fullnuma verð ég senn.

Þeir bregðast við brýnum vanda,
businn og vinir hans.
Læra til hugar og handa
að hagnýta gáfur manns.
Hvort sem þeir tungum tala,
taka á sögu lands,
rafsjóða, rýna, mala,
reikna með elegans.
  Í FSu er grín og gaman
  gott er að vera þar
  einn eða allir saman.
  Enginn fær neitandi svar.
  FSu er æði,
  ég allur í skinni brenn
  að nema þar fög og fræði,
  já, fullnuma verð ég senn.

Svo halda þeir bráðum brottu,
brosandi syngja lag
og kennarar kátir glottu,
já, komið er nóg í dag.
En klárarnir áfram arka,
alþjóðar bæta hag.
Þessa dugnaðarþjarka
má þekkja á sínum brag:
  Í FSu er grín og gaman
  gott er að vera þar
  einn eða allir saman.
  Enginn fær neitandi svar.
  FSu er æði,
  ég allur í skinni brenn
  að nema þar fög og fræði,
  já, fullnuma verð ég senn.

Published in: on nóvember 18, 2007 at 9:50 pm Rita ummæli

Til dimittenda

Hvað skal segja þegar þið
sem þykist vera úrvalslið
hingað meður kjaft og klið
komið nú og spangólið?

Þraut er mér að þekkja hér
þrjótana sem augað sér.
Ég finn nú vart það fljóðager
sem fyrr í vetur svaf hjá mér.

En þið hafið sjaldan hrotið hátt.
Heyrðuð kannski soldið fátt.
Stundum treg að hafa hljóð,
halda kjafti og vera góð.

Þyngdarpunktur ykkar er
eins og fyrrum, sýnist mér.
Að týna þungu höfði hér
henti ei neinn, sem betur fer.

Þið skuluð núna halda haus,
hlusta ekki á neitt drykkjuraus,
rífa kjaft sem rómur kaus
og róta héðan fylgdarlaus

Gangið vel um gleðikút,
gleymið ykkar fýlustút.
Takið mark á heimskum hrút:
Hlýðið nú og snautið út.

Published in: on nóvember 16, 2007 at 9:53 pm Rita ummæli

Verkfallsblús

Æskan er farin svo fátt
fer okkur vel nema grátt
   því ræksnin í brúnni
   rændu okkur trúnni
á rautt, og svo grænt, og nú blátt.

Published in: on at 9:39 pm Rita ummæli

Á söguslóðum Laxdælu

Dalirnir drattast hjá.
Deginum halla fer.
Höfuðið hangir á
hálsinum varla mér.

Published in: on nóvember 15, 2007 at 10:18 pm Rita ummæli

Oddi

Þetta er engin hönnun án hlera
sem húsið er gert til að bera
   en hönnunargallinn
   er hauskúpusallinn
sem undir þeim ætlar að vera.

Published in: on at 8:15 pm Rita ummæli