Burtu með slenið og slúðrið,
sleikjum af sálinni hrúðrið.
Föðmum og kyssum,
framhaldið rissum
og fýrum svo báli í púðrið.
Áramót
Adamssynir
(Ný þýðing)
Hjá Adami syrti og sonum
er syndin vitnaðist Honum:
Allt þú-st gegt
guðrækilegt
og gera það bara með konum.
Lögreglumál
(Tilbrigði við orðtak)
Rummunga elta á röndunum
sem reglur vilja úr böndunum.
Haldleggja efni
– með Harald í stefni -
og hafa það allt undir höndunum.
Jólablús
Flestir pakkana fengu
og fúsir til náða gengu.
Eftirá séð:
Allt þetta streð
ys og þys útaf engu?
Til Júdasar
Bransinn er stöðugt að stækka
og stórvirkjum fráleitt að fækka:
Kænlega kysst,
krossfest af list
og launin helling að hækka.
Jólahvað?
Jólin hér og jólin þar,
jólin hvert sem er litið.
Ég elska jólagjafirnar
og jólasamviskubitið.
Skálholt?
Banaspjót barst ég á.
Bara veit ekki frá
hverjum né hví.
Ég hætti mér í
kyrrðarstund kirkjunni hjá.