Mótmælum vér?

Þó heilagar saurgi menn hallir
hrokans í freistingu fallnir
   svo öskrin á fundum
   æri á stundum
vér mótmælum alls ekki allir.

Published in:  on janúar 26, 2008 at 9:46 pm Rita ummæli

Handbolti? E-hm

Þó leikhópinn sæjum við svalan
var sorglega auðvelt að mal´ann.
   En batinn er vís
   og bráðlega rís
væntingavísitalan.

Published in:  on janúar 24, 2008 at 8:47 pm Rita ummæli

Nýjasti meirihlutinn

Makaskiptin nú ganga greitt.
Gjörnýtast brúðarslörin.
Fengu þó ekki að flangsa neitt
Framsóknarhnífapörin.

Published in:  on janúar 23, 2008 at 9:19 pm Rita ummæli

Föt og rýtingar

Bandamenn bjóða sig fala.
Á bak um sitt heimafólk tala.
   En fötin þess gjalda
   hve grýtt er til valda
á gullöld rýtingasala.

Published in:  on janúar 21, 2008 at 9:49 pm Rita ummæli

Staksteinar?

Ráðamenn rökstyðja af list.
Refskákin ekki nein wist.
   Pétur, greykallinn,
   á prófinu fallinn
því pabbi hans byrjaði fyrst.

Published in:  on janúar 16, 2008 at 8:20 pm Rita ummæli

Kofana burt

Kofana mega þeir massa
sem Mammoni hvergi passa.
   Þið hljótið að sjá
   að hér þarf að fá
hámóðins gámakassa.

Published in:  on janúar 15, 2008 at 8:54 pm Rita ummæli

Af stírum?

Össur karlinn fældi frú,
fylgdu magasýrur.
Engar kvelja augun nú
orkumálastýrur.

Published in:  on at 2:58 pm Rita ummæli