Við þurfum að skamma þann skríl
er skapar nú umferðarvíl
því hiklaust ég segi
að hér verður eigi
hundi út sigandi á bíl.
Vitnað í Baggalút
Stéttabarátta 2
Enginn má auðmagnið teppa
því allir að lokum það hreppa
en gott er að sjá
hvað gengur hér á
svo getum við ekið á jeppa.
Íslensk stéttabarátta
Upp með andfælum hrukkum.
Svo út úr bílunum stukkum:
Þeir kúguðu, svöngu
í kröfugöngu
á töluvert glansandi trukkum.
Til Björgvins
Eftir námskeið eru mér
ýmsar leiðir nýtar
þó léttast væri að lúlla sér
og leika á bassagítar.