Þjóðarsátt 2

Þegar ég staurblankur strita
og stari á þjóðina blæða
er bót í baslinu að vita
að bankarnir skuli nú græða.

Published in: on maí 8, 2008 at 8:16 am Rita ummæli

Þjóðarsátt

Þegar ég staurblankur strita
og stari á lífskjörin hrapa
er bullandi blessun að vita
að bankarnir skuli ekki tapa.

Published in: on maí 7, 2008 at 10:34 pm Rita ummæli

Með náttúru

Umhverfisnefndin ung og hress
efalaust nær að megna
að gjörnýta allt og gæta þess
að gera það beggja vegna.

Published in: on maí 1, 2008 at 6:14 pm Rita ummæli