Snyrtipinnasöngurinn

Þegar snyrtipinni snæðir þarf hann snyrtilega að fara
enda húðlitur í hættu komi skítur skinnið á:
Öllu greitt í ginið henda
og með gosi niður senda
í sinn brúna ræktarbelg og verður býsna mettur þá.

Þegar öllu þessu er lokið má hann dusta af sér dreifar
og svo dúið aftur laga, þá er fílingin svo fín.
Umbúðirnar nú skal nýta
og með nautn í gólfið ýta;
síðan tæma allar dósir yfir draslið, heillin mín.

Published in:  on júní 3, 2008 at 3:12 pm Rita ummæli

Peruskiptasöngurinn

Þegar ljósið þarf að laga ljósaperuskiptamaður
eftir dúk og diskinn mætir, ökudagbók rita fer.
Sér í vinnufötin vindur.
Á sig verkleg tólin bindur.
Gott er kaffitár að lepja áður lengra haldið er.

Þegar öllu þessu er lokið er oft biliríið búið
enda best að sleppa við að gera handtak húsum í.
Þá er kaffið gott að klára
og með kurt á reikning pára;
hraða sér í burtu áður peran eyðileggst á ný.

Published in:  on at 3:11 pm Ummæli (1)