Missum ei móðinn strax.
Munum að leita lags:
Þó allt sé “down”
er Ásdís Rán
fáklædd á forsíðu Max.
Ásdís Rán
Þjóðráð
Nú þegar sorg er í sinni
og sútin hangir í minni
er lagið að taka
lykkju til baka
og lifa í fortíðinni.
Nú má ég
Hvað veldur nú vorum raunum
veit ég hreint ekki baun um
en lýsi mig fúsan
að borga brúsann
enda á ofurlaunum.
Gordon Brown II
Gordon sem gerræði unni
gerði það vel sem hann kunni:
Fórnaði oss
og festi á kross
með örlítið óbragð í munni.
Áfram
Engan vil sækja til saka
né sífellt að horfa til baka
því peningum náum
og prúðbúin fáum
að vera hér úti að aka.
Ensk smjörklípa
Kaupþingi á kúpuna sneri
klípa sem gerð er úr sméri
frá Gordoni Brown,
grímunnar án,
og elskunni Allisteri.
Glataður sparnaður
Á dal mínum hefur nú harðnað.
Af hagsýni gat ég ei barnað
konuna – núna
kvelur það frúna:
Ég eyddi því öllu í sparnað.