Smjörklípur góðar ég geymi
og gef þegar ógn er á sveimi.
Drjúgur að hlakka,
með dágóðan makka
og dýrasta kjaftinn í heimi.
Hver er maðurinn?
Orðskýring
Margháttuð merking er
málsins nú, samanber:
Öllum til ama
er ekki það sama
að tala og segja af sér.
Frægð og frami
Er siglum við svala dröfn
og sýnumst öll vera jöfn
alþingi fann
sér umboðsmann
þó heimsfrægðin virðist í höfn.
Strikið
Grikk mikinn gerðu mér
greyin sem ríkja hér.
En þó eigurnar hrapi
og öllu ég tapi
er óþarfi að tapa sér.
Ný útrás
Fjárhættuspilarar flýja
er finnast ei neinir að rýja.
Með taumlausum seggjum
og tómötum, eggjum,
tekur við útrásin nýja.
Að sjómannasið
Ef á hreppinn ginna grepp
ég get á Kleppi múnað
eða á jeppalygalepp
liðkað sleppibúnað.
Ný auðlind
Silfrið nú förum að fægja
og ferðamannsakurinn plægja
er þúsundum saman
í Þórðargaman
þyrpast menn hingað að hlæja.