Gleðilegt

Eftir mas og bölvað bras
ber ei þrasið trega
en að rasa út í das
alveg Gazalega.

Published in: on desember 31, 2008 at 10:59 am Rita ummæli

Áramótaávarp

Kveðju vil síðbúna senda
sálum á Fróni er lenda
   rummungum í
   – og ruglast í því
að hérna er bannað að benda.

Published in: on desember 30, 2008 at 9:22 pm Rita ummæli

Eitthvað rotið í ríki …

Við héldum á hæsta topp
sem hrapalegt reyndist flopp
   því kerfið var rotið.
   Nú kembum við slotið
með Airwick Odour Stop.

Published in: on desember 28, 2008 at 8:11 pm Rita ummæli

Nóg

Um hátíðarnar við finnum fró
og friðinn í lúnum beinum
þó áfram verði hér yfrið nóg
af allskonar jólasveinum.

Published in: on desember 22, 2008 at 4:13 pm Rita ummæli

Nýju jólin

Nú eru handan við hól
heilnæm og sexý jól
   því bruðlið við spörum;
   í boðin öll förum
bara klædd sultaról.

Published in: on desember 20, 2008 at 5:35 pm Rita ummæli

Ásdís Rán II

Bý yfir lokkandi línum
sem loka ei niðri í skrínum
   en angri nú veldur
   hve athygli heldur
uppgerð á vörum mínum.

Published in: on desember 19, 2008 at 1:22 pm Rita ummæli

Nýr Don Juan

Mikið er duflað og dæst.
Ég Don Juan vera læst:
   Leita og finn
   og læði svo inn
hverju sem hendi er næst.

Published in: on desember 17, 2008 at 4:21 pm Rita ummæli