Ný framsókn

Liggur nú aftur leiðin til baka
frá lygum og sýndarrökum
því framsóknarmenn okkar fjármál taka
föstum vettlingatökum.

Published in: on janúar 27, 2009 at 9:27 am Rita ummæli

Verja hvað?

Í framsóknina færist hiti.
Finnst þó á sá galli
að enginn skuli vilja af viti
verja okkur falli.

Published in: on janúar 21, 2009 at 9:02 pm Rita ummæli

Athafnaskáld 2

Athafnaskáldin stolinstefja
í stuðlasetning rýna
áður en þau sem ungskáld hefja
afturgöngu sína.

Published in: on janúar 18, 2009 at 10:54 am Rita ummæli

Athafnaskáld 1

Athafnaskáldin hraðfleyg, hraust,
hrókera nú að vanda
án þess að hafa efalaust
eitthvað á milli handa.

Published in: on at 10:51 am Rita ummæli

EXB

Framsókn á fætur dregin
flykkist á Sambandsveginn
   og kröfurnar gerði
   að gróðinn nú verði
alfarið okkar megin.

Published in: on janúar 17, 2009 at 2:23 pm Rita ummæli

Sá grái

Dísirnar allar ég elti
með augum og fyrir mér velti
   hvað ólgi og kraumi
   með iðum og flaumi
nálega niðrundir belti.

Published in: on janúar 16, 2009 at 5:40 pm Rita ummæli

Teppa

Ég fæ upp í kok af kreppu
með kölduflog, þrautir, teppu
   svo rímið er falið.
   Í raun er nú valið
um rauðmaga og grá-uh-sleppu.

Published in: on janúar 13, 2009 at 9:23 pm Rita ummæli