Auglýsing

Það tekur víst engu tali
um tilgang og leit að ég mali
   en furðulegt var
   að finna það, mar,
að ég fékk það í Harðviðarvali.

Published in: on febrúar 14, 2009 at 11:05 am Rita ummæli

Tímabær spurning

Davíð, hann fær ekki að fjúka
þó fáir nú vilji hann brúka.
   Því verður hann kyr
   en hvert var það, ég spyr,
verkið sem þarf hann að ljúka?

Published in: on at 11:00 am Rita ummæli

Styttist í verklok

Fremd er að foringja sterkum
sem forðast að ljúka ei verkum.
   Nú brýnt er að treysta
   hann brátt nái að kreista
öndina úr vorum kverkum.

Published in: on febrúar 12, 2009 at 9:32 pm Rita ummæli

Vel sloppið

Fjölni á sundi sé
sælan í Tjörninne
   frjálsan, ó Gvöð
   frá þeirri kvöð
að fullnægja kryddi B.

Published in: on febrúar 7, 2009 at 1:01 pm Rita ummæli