“Sæll, hr. Bjór, þetta er ég.”

Þó nóg sé í flokksræðisflórnum
og fjörugt í skoðanahórnum
   kýs ég nú enn
   konur og menn
sem kynna mig best fyrir bjórnum.

Published in:  on apríl 23, 2009 at 6:57 pm Rita ummæli

Kennarabrandari

Barnið mitt fádæma frítt
úr frosti og gefið og rítt
   má það nú prísa
   þó mögnuð sé krísa
að mannkynið skuli ekki skítt.

Published in:  on apríl 2, 2009 at 10:26 am Rita ummæli