Heilræðavísur á 21. öld

Ungum er það bara best
að belgja sig og derra.
Þeim mun valdið veitast mest
og vegsemd aldrei þverra.

Hafðu lúkkið heitt og flott,
húkkaðu vini fína.
Ætíð Mammon gerðu gott.
Geym vel aura þína.

Fyrirtækjunum fylg  af dyggð
er fé þér munu veita.
Varastu þeim að valda styggð
viljirðu gróða leita.

Hugsa um það helst og fremst
hagræðingu að beita;
aldrei sá til álna kemst
sem umhyggju skal veita.

Bófinn er af brotum glaður,
bónus fær  hjá þjóðum.
Hinn er ei nema hálfur maður
sem hampar siðum góðum.

Alltaf sá í aurum flýtur
sem aðra lærði að ginna
en beljan heimska bóta nýtur
er börnum valdi að sinna.

Vertu dyggur toppum, tryggur,
tungu geymdu þína.
Á baki ligg uns bitling þiggur.
Bruggaðu ráð í tíma.

Hossum kátir krimmum, dátum
könum ef þeir játa;
Vörumst gát en gleðja látum
gilda pótintáta.

Víst ávallt þeim vana halt:
Virkja, pranga, stýra.
Umfram allt haf ætíð falt
ærutetrið rýra.

Birt on nóvember 16, 2007 at 9:26 pm Ummæli (2)

The URI to TrackBack this entry is: http://gislisk.wordpress.com/heilr%c3%a6%c3%b0avisur-a-21-old/trackback/

RSS feed for comments on this post.

2 Ummæli Leave a comment.

  1. hæ hæ, ég rambaði hér inn fyrir slysni:)
    þú ert ekkert smá flottur penni!
    má ég nota eina vísuna þína á kort sem ég er að föndra?

  2. Blessuð Kristjana, og takk fyrir hrósið.
    Þér er frjálst að vitna í leirinn minn ef þú nefnir heimildina. Svo sendir þú mér kannski sýnishorn af kortinu þegar þar að kemur.
    Kveðja, Gísli.


Leave a Comment